
Ég er fædd 82 og er Reykjavíkurmær. Reyndar þá er ég núna í skóla á Hvanneyri að læra umhverfisskipulag, sem er nokkurskonar landslags arkítektúr.
Það verður bara að segjast að ég hef næstum alla mína ævi verið svona búttubolla. Ég hef aldrei verið grönn stelpa. Hver ástæðan er, er ég ekki alveg klár á, en ég held að þetta hafi allt saman byrjað um leið og ég byrjaði í skóla. Núna er ég búin að vera í þessum of þunga líkama í þetta mörg ár og tími til kominn að endurnýja.
Það tók mig sirka 3 mánuði að móta hugan rétt og að fá réttu tilfinninguna fyrir þessu. Ég byrjaði á því að hætta að borða jafn mikinn sykur svona smátt og smátt. Næsta skref var að borða aðeins hollara. Í fyrstu þá ætlaði ég að reyna þetta bara sjálf. Áttaði mig svo á því að það gengi ekki. Mig vantaði hjálp en ég var ekki alveg viss hvernig hjálp. Ég keypti mér meira að segja e-a geisladiska sem áttu að móta hugann þannig að mann myndi ekki langa í sætindi og þess háttar. Ég entist nú ekki lengi í því, en ég held samt að það hafi nú haft e-r áhrif. Næsta skref var þá að fara í ræktina. Það er e-ð sem ég hef gert marg oft áður og hefur e-a hluta vegna ekki alveg virkað fyrir mig. En ég var komin með soldið annan hugsunarhátt og varð bara að finna þá leið sem hentaði mér best… ég var á missioni!!! Ég hafði prófað ddv 3 áður og ég gafst alltaf upp. Aðalástæðan var að sjálfsögðu að hugurinn var ekki með og ég var að gera þetta fyrir annan en mig. En önnur ástæða var líka sú að mér fannst stundum bara óyfirstíganlegt að borða allt þetta grænmeti. Ég hugsaði þetta með sjálfri mér í nokkrar vikur hvað ég gæti gert í þessu. Niðurstaðan varð sú að ég prófaði að blenda bara grænmetið í mauk og drekka það í einum gúllsopa og elda matinn þannig að grænmetið sé allt í honum. Þetta virkaði svona prýðilega að ég ákvað að skella mér á fund hjá ddv 19.janúar. Það kvöld steig ég minn hinsta dans í bili með mr. Candy McFastfoodson. Síðan þá hefur hann reynt að bjóða mér upp í dans en ég neitað staðfastlega og er að mestuleiti laus við löngunina í dansinn með honum.
No Comments Yet so far
Leave a comment
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>