Filed under: Uncategorized
Jájá… ég sem hélt ég væri svo heppin að sleppa oftast við svona gubbupestir….. en neinei byrjaði daginn á því að æla soldið… alltaf jafn hressandi! Og ég sem átti að mæta í skólann kl 9 í morgun og ég er ennþá í rvk :S og ég þarf að vera mætt þangað til að vinna verkefni sem á að skila á morgun með 3 öðrum….uuuurrrg
Filed under: Uncategorized
Fjúff mig langar sko ekkert í sveitina!!! Áður en ég fór í skóla á Hvanneyri þá hefði mig dauðlangað að fara upp í sveit á svona góðum degi. Núna langar mig bara að spóka mig í bænum þar sem er fólk! hehehe
Ég er e-ð svo ótrúleg listarlaus þessa dagana! Get ekki klárað máltíðir eins og pastasósu og smá pasta. Kannski er ég bara búin að fá leið á því en well í þannig tilfellum er bara gott að eiga fiskibollur í fristinum og grænmeti í blenderinn! Veit bara ekki hvað þetta er með mig! Ég blogga nú bara sem óð… 3 færslur í dag… hehehehe
Filed under: Uncategorized
Já af mér er nú helst að frétta að ég var að koma frá Finnlandi. Skrapp til bróður míns og mágkonu og 3 barna þeirra með mömmu. Ástæðan var nú sú að það var sent eftir okkur mömmu að koma og passa krakkalakkana. Það var svaka stuð. Enda rosalega gaman að fá að kynnast krökkunum svona vel þótt þau búi í útlöndum.
Matarplanið gekk prýðilega. Ég losaði mig alveg við nákvæmlega eitt kíló á meðan ég var úti, var í viku. En mikið svakalega fannst mér erfitt að fara á flugvöllinn og kaupa ekkert nammi. Fannst líka soldið erfitt að geta ekki fengið mér sama gúmmilaðið og alltaf sem maður er vanur að pota í sig á svona ferðalögum. Borðaði t.d ekki flugvélamatinn. Kannski ekki mikið að missa af en samt, e-ð undarlegt við að segja “nei takk” við flugvélamat. En ég stóðst þessar freistingar og svindlaði ekki einu sinni. Gerði samt heiðarlega tilraun til þess….. skar mér smá bita af e-u bakkelsi og ætlaði nú bara að smakka einn bita… en nei ég tugði hann og á meðan ég tugði komu hugsanirnar “nei ekki kyngja…. þessi sykur á eftir að hægja svo mikið á brennslunni” og “þetta á eftir að eyðileggja allt”. Þannig að ég gat einfaldlega ekki kyngt… ég henti honum í ruslið. Ég var nú samt alveg við það að bugast á tímabili….. en þá hugsaði ég með mér “ef ég stenst þetta… þá get ég staðist allt”. Þannig að núna skv þessu… á ég að geta staðist allt hahaha
Er samt núna búin að vera e-ð treg við að klára mjólkurskammtinn og ávextina! Finnst ég bara vera alltaf svo ótrúlega södd! Þarf bara að taka mig á í þessu
Filed under: Uncategorized
Ég ákvað að stofna mitt eigið einka blogg. Hérna hef ég hugsað mér að deila pælingum og gengi átaksins míns sem ég byrjaði í 19.janúar 2006. Ég held að 2006 sé árið….