Filed under: Uncategorized
jáhh… ekki mikið blogað um helgina. Veit ekki hvað hefur komið yfir mig! Ég bara tek til eins og ég eigi lífið að leysa! Byrjaði með því að ég tók íbúðina mína á Klappó í gegn. Breytti meira að segja í svefnherberginu gaaaal ein haha. Það var svona soldið stór tveggjasæta sófi inni í svefnherberginu og skrifborð…. og mín mátti nú ekki vera að því að hringja út e-ð lið til að hjálpa sér. Neinei ég bara dröslaði sófanum ein niður í geymslu og skrifborðinu líka hahaha!!! Ég svona vippaði honum upp á tána fyrst og hoppaði soldið aftur á bak svo hélt ég smá á honum svo dró ég hann líka soldið… sá samt ekki á honum
Heheeh það hefur örugglega verið ansi skondið að horfa á mig þarna brasa þetta!! Svo ákvað ég að taka ryksuguna mína með mér hingað á Hvanneyri. Finnst bara ekki alveg nógu gott að rykmoppa alltaf. Þannig að ég fór tíma í morgun, dreif mig svo heim og tók til. Þurrkaði af öllu og skúraði meira að segja
Nú get ég boðið hverjum sem er í heimsókn hehe Endilega koma í heimsókn núna
hehehe aaaahh hreingerningar lykt ![]()
Matarmálin ganga betur en í seinustu viku. Enda mamman komin heim
Fiskibollur og pastasósa klikka ekki
Gleymi reyndar stundum ennþá að klára mjólkur skammtinn! Verð bara að fara að þamba mjólk á morgnanna! Líka byrjuð að skrifa betur niður
Þannig að þetta er allt að smella aftur.
Filed under: Uncategorized
já jamm og jæja… þrátt fyrir lata viku losaði ég mig við 0,5kg sem gerir þá ákkúrat 10 kg
hehehe búin að vera 10 vikur í þessu…. allt á áætlun
kíló á viku hehe. Þetta hvetur mann allavega vel áfram
Enginn slugsaháttu næstu viku
Skrifa allt niður heheh. En mamma mín var að koma heim frá úglöndum. Hún kom alveg færandi hendi! Fékk myndavél, skó og sænskt smjörlíki svona til að smyrja á brauð
hehheeh mjög sátt við það. Veit ekki hvað það er… finnst bara bragðið af sænsku smjörlíki betra en af íslenska! undarlegt eheheh.
Varð svo aftur glöð áðan. Fann Ninja búninginn minn síðan ég var að dimitera í MR
ohh það var svo gaman. Það er sko grímuball á morgun í sveitinni. Þannig að það er spurning um að skella sér bara
Þarf hvort eð er að vera þarna uppfrá núna um helgina held ég til að ná að klára öll þessi kjána verkefni!!! Grímuballið verður á Indriðastöðum sem er nú eiginlega bara e-r hlaða eða svona úti hús þannig að þessi ninja búningur er fullkominn í það. Hægt að vera í mörgum lögum af fötum innan undir honum
hehehe
Æjhh er bara svo ánægð e-ð… hélt að þessi dagur yrði e-ð prump út af því að ég hélt ég hefði þyngst… en svo e-n veginn gekk allt svo vel upp
ekki hægt að biðja um meira! Held ég fari og leggi mig til að setja punktinn yfir i-ið
Filed under: Uncategorized
Þessir kennarar eru verkefnaóðir… Var að koma heim úr skólanum. Var að gera litahring… og það er bara ca 1/10 af verkefninu… pjúff… og það tekur bara slatta mikinn tíma!!! Svo er stórt verkefni í umsk pjúff!!! jæja bara bretta upp ermar!
Hmmm er búin að vera e-ð löt í mataræðinu þessa vikuna! Held það sé út af því að ég hef borðað bara venjulegt pasta en ekki spelt og þá kallar líkaminn minn á meira hvít hveiti sull! Svo hef ég ekki fengið mér sítrónuvatn á morgnanna! Oooog ekki borðað nógu mikinn fisk og aðalástæðan.. ég hef slugsast við að skrifa niður! Fékk bara allt í einu svaaaakalega mikið leið á þessu öllu saman! Ég hef nú samt ekki dott í e-ð sykursull og nammi og óhollan mat þannig séð! alltaf borðað það sem ég á að borða nema kannski aðeins of mikið af kjöti!! Verð bara að anda djúpt og byrja næstu viku vel og SKRIFA NIÐUR!!!! hhrrmmmfff þetta lagatt þegar mamma kemur heim :/ sem er á morgun
heheh
Filed under: Uncategorized
Ég er búin að vera soldið í því að svindla í brauðinu. Samt ekkert
alvarlegt… en allavega ein brauðsneið hingað og þangað! Bara e-ð til
að sigrast á
hehehe
Maggi bró er að koma til landsins… líklegast bara rétt ókominn. Verður nú gaman að segja hæ við hann
Hey
já… fór algjörlega óvænt á players um helgina…. hahaha legg nú ekki
í vana minn að fara þangað… ekki alveg mitt crowd
en það var
skagfirsk sveifla í gangi þannig að við urðum bara að skella okkur.
Vorum bara tvö, ég og Sjonni félagi minn sem gerði þetta held ég bara
enn skemmtilegra… dönsuðum eins og kjánar með sextuga liðinu sem
kunnu alla textana. Þetta var allavega mjög athygli(s)vert
hehehehhe
Svo skelltum við okkur í bæinn svona rétt til að minna okkur á hvernig
við “eigum” að haga okkur á okkar aldri heheh. Þetta var mjög
skemmtilegt og óvænt kvöld
En jæja… Maggi bró kominn ![]()
Filed under: Uncategorized
Vaknaði í morgun…. staulaðist fram á bað og beint á klóið… stend upp og þvæ hendurnar og kíki í spegil og VÓTSÍ… shit hvað ég er e-ð dökkhærð… Klippikonan setti svona dökkar strípur e-ð undir og inn á milli og blabla… ég sagði bara jájá… hmmm veit ekki alveg hvort ég fýli þetta! Gef þessu viku
Annars bara fínt að frétta! Fyrir utan að ég finn ekki myndavélina mína
og ég þarf að skila verkefni í skólanum sem byggist á ljósmyndum! Þetta reddast! Búin að leita að henni í ca 2 vikur!!
hmm matar mál…. gleymdi að klára mjólkina í gær :/ þarf að vera duglegri að muna hana heheheh setja límmiða á nefið
Filed under: Uncategorized
……Nýtt hár… jájá… fór í klippingu í dag! voða gaman. Finnst ég reyndar vera með alveg eins klippingu og allar aðrar stelpur í dag… en well… hún er ágæt heheh.
Fór í grillið í gær
ooohh hvað það var gott að fá grillaða pulsu! Held ég verði nú bara að verða mér út um grill í sumar til að hafa á svölunum á Klappó
úhh þá gæti ég boðið í svona grill inni partý hahah úhh strax farin að hlakka til
Fékk mér samloku í hádeginu með róstbíf og heima tilbúnu remúlaði mmmm…. rosa gott
![]()
Hey… fattaði hvernig á að setja inn myndir… þessi er nú kannski ekki alveg súper en klippingin sést smá

Filed under: Uncategorized
jájá.. meira ferðalagið á manni! Fór í vigtun í dag. 0,6 kg niður… þannig að það eru komin 9,5kg allt í allt
Þannig að þetta gengur
Er í bænum núna en ætla á hvannó aftur á eftir, þarf að mæta í tíma í fyrramálið. Það er líka fjárhúsgrillpartý og e-ð húllum hæ á pöbbnum í kvöld hehehe jájá… þeir kunna þetta Hvanneyringarnir. Þannig að ég borðaði kvöldmatinn í hádeginu og á þá hádegismatinn í kvöld og ég sparaði brauðið frá því í morgun. Þannig að ég get fengið mér grillaða pulsu í brauði
held ég drekki bara grænmetið áður en ég fer á staðinn hehehe úhh svo ætla ég að taka með mér ávexti hmmm gæti sossum tekið með mér íspinna líka bara hmmm geymt þá bara úti þangað til ég myndi borða þá!!! hehehehehhe….. jájá… allt útpælt skal ég ykkur segja
Filed under: Uncategorized
Fékk úr grasafræðiprófinu í dag… var með svona smá hnút í maganum yfir því að hafa jafnvel bara fallið… en neinei fékk 7,8 og er bara prýðis sátt með það
Er í hádegishléi núna… er að búa mér til ommelettu og er búin að svolgra í mig grænmetið
meira seinna
Filed under: Uncategorized
Nú flæðir allt í verkefnavinnu… Tími til kominn segi ég nú bara hahah… neinei kannski ekki! En klárðum sumsé verkefni í gær og fluttum það í dag. Vorum að greina grænanetið í settu skipulagi í Úlfarsárdalnum. Gekk bara prýðilega og var bara skemmtilegt verkefni þegar öllu var á botninn hvolft! Svo vorum ég og Alda bekkjarsystir mín enda við að klára að skirfa mini ritgerð um Hof Hamuyan eða hvað sem hann hét nú! Rumpuðum því af á fá einum klukkutímum. Svo núna er bara vistfræðiverkefnið eftir sem á að skila á fimmtudaginn! En svo var verið að setja fyrir mjög stórt einstaklins verkefni fyrir í dag í umhverfisskipulaginu. Við eigum að hanna lóð fyrir leikskóla og barnaskóla. Og við eigum að koma fyrir 5000 rúmmetrum af mold!!!!! Þetta verður e-ð áhugavert heheh!
Annars er dagurinn svona matarlega séð bara búinn að vera fínn! Fékk mér fiskibollur í hamborgarabrauði í hádeginu….. alvarlega að spá í að fá mér fiskibollur aftur í kvöld hahah… saknaði þeirra í Finnlandinu
En… svo er saumó í kvöld hjá krökkunum í umsk I í skólanum. Ég veit ekki… maður á víst að vera að prjóna e-ð og sauma! Held ég byrji nú bara á því að mæta… ekkert búin að mæta :$ Ætli ég mæti ekki bara með ávexti og mjólk… á það alltaf eftir svona á kvöldin úhh tek kannski bara með mér einn íspinna eða svo
En jæja uppvaskið bíður fnus á það!
Filed under: Uncategorized
Furðulegt… var mjög slæm í nótt og í morgun… en svo bara upp úr hádegi var ég bara orðin hressari. Dreif mig þá að búa mig fyrir Hvanneyri og var komið hingað um 15:00…. Fór þá beint að vinna í þessu verkefni og finn ekki fyrir þessu blessaða gubbulubbi! Mjög gott verð ég nú bara að segja
borðaði meira að segja bara heila máltíð í kvöld
Þannig að þetta er bara í góðu
úhh sex and the city í sjónvarpinu…. farin