Filed under: Uncategorized
Halló halló! hef algjörlega ekki verið í blogstuði seinustu vikur! vonandi batnar það nú hahahah! En mataræðið hefur gengið upp og niður síðustu vikur. Í prófunum fór allt í rassgat! Fékk mér nammi og e-ð…. sem ég bara skil ekki afhverju ég gerði… En… það þýðir lítið að velta sér upp úr því núna. Verð að geta fyrirgefið sjálfri mér fyrir svona hliðarspor… er það ekki? Núna er ég bara að reyna að vinna mig upp úr þessari lægð… soldið basl… en þetta hefst á endanum
Þyngdist um 400gr eftir prófavikurnar. Næstu viku á eftir léttist ég svo um nákvæmlega 1400gr þannig að ég náði því niður í einni lotu heheh. Í vigtuninni í dag losaði ég mig við 1,1 kg. Í heildina er ég þá búin að henda 16,6 kg af líkamanum mínum.
Þóra litla frænka mín eða bróður dóttir mín hahah.. hljómar svo fullorðið, er í heimsókn. Hún er að verða 6 ára í næsta mánuði
Svaka stuð hjá okkur. hehehe enda ekki annað hægt með svona sætri og góðri skvísu
Á morgun byrja ég svo að vinna! þá kemst nú líka meiri regla á daginn hjá mér. Borða þá morgunmat áður en ég fer í vinnuna, hádegismat í hádeginu (held ég) og svo kvöldmat þegar ég kem heim… rosa gott! En já ég er að fara vinna sem stöðumælavörður í sumar hahahaha það verður nú e-ð fróðlegt! En… fæ þá allavega að vera úti í sumar og labba allan daginn!
Er að spá í að fara að lyfta soldið og bara fara í ræktina þegar ég er búin að losa mig við ca 20 kg. Svona svo að maður fái soldið góðar línur heheheh… kannski maður skelli sér í kraftlyftingar… hef nú genin í það hahahah!
En jæja… blogga nú bráðum aftur ![]()
Filed under: Uncategorized
Þetta er orðið svona viku blogg bara hjá mér hehe… En fór í vigtun áðan og losaði mig við 900gr!! þannig að í heildina er komið 14,5 kg á 15 vikum. Þannig að ég er svona næstum því á réttu róli.
Skólinn er bara búinn að vera brjálaður. Hellingur af lokaverkefna skilum í þessari viku og í næstu og svo fyrsta prófið á föstudaginn. Held að þessir blessuðu kennarar ættu nú aðeins að fara að rýna í skipulagið á náminu. Finnst alveg ótrúlegt hvað þessi önn hefur verið illa skipulögð og bara algjörlega engan veginn sæmandi. Og það kjánalega við þetta allt saman er að deildin heitir UmhverfisSKIPULAG. Urrg verð svo pirruð á svona hlutum þegar það þarf bara e-ð örlítið til að þetta gangi bara fínt upp. Langar helst að fá að skipuleggja þetta bara sjálf fyrir næstu önn svo að þessir kjánar klúðri þessu ekki aftur urrrg. Svo lofa þau líka öllu góðu og ekkert gerist. Náttúrulega engan veginn mannsæmandi og hlutur sem þarf að breyta hið snarasta. Held ég geti bara fátt gott sagt um skólann minn að svo stöddu. Illa skipulagður, fáum verkefni hér um bil aldrei til baka, kennararnir hálfgerðar rolur, raungreina kennararnir líta niður til okkar á umhverfisskipulaginu… en það fyndna er að sterkustu nemendurnir í þeirra greinum erum við, finnst ég hafa lært mjög lítið í umhverfisskipulaginu þessa önnina…. veit satt best að segja eiginlega ekki úr hverju þau ætla að prófa, fengum eitt hefti sem eru svona 30 bls og svo illa ljósritað saman safn af e-m greinum, that´s it… mjög undarlegt fyrirkomulag. Svo gerðum við þetta risa stóra verkefni í umskinu sem kom bara engan veginn nógu vel út. Við vissum ekki bofs hvað við vorum að gera og verkefnalýsingin var hræðileg. Fórum í skoðunarferð þegar hálfur mánuður var liðinn af þessum mánuði sem við fengum til að gera þetta verkefni. Hún átti að hjálpa okkur að fá hugmyndir… en þá er bara helmingurinn af tímanum farinn í súginn. Fengum engin öryggis við mið eða neitt þannig. Áttum að gera sneiðingu af svæðinu sem að allir gerðu eins og okkur var kennt. En kennaranum fannst hún engan veginn nógu góð…… hún hefði þá átt að kenna okkur þetta betur…… lesum ekki hugsanir. Held að þessir kennarar haldi að við lesum hugsanir…. það bara hlýtur að vera… þetta getur ekki átt að vera svona kjánalegt hjá þeim. Fjúffffff jæja… ætla að hætta að nöldra og fara að læra e-ð….. vona að ég misskilji það ekki út af lélegri verkefnalýsingu……. uuuurrrrggg….. shit hvað ég er pirruð hahahha…..
Filed under: Uncategorized
Jájá fór í vigtun í gær, losaði mig við 800gr þessa vikuna og er þá orðin heilum 13,6 kg léttari.
Er orðin miklu hressari og bara nokkuð góð! En e-m þarna uppi fannst það ekki alveg eiga við og klaufanum mér tókst að trampa á glerbrot í gær. Fékk sumsé stærðar glerbrot í hælinn og stærðarinnar skurð og allt út í blóði og veseni! urrg og arg… Fór til læknis áðan og hann sagði orðrétt "æjæj stelpulingur þú ert bara með stærðar skurð á fæti" hahahahahah og "við þurfum bara að setja svona alvöru plástur á þetta" hahahahah
Var búin að fá frest á því að skila verkefninu og fékk einn dag í viðbót. Er svona að klára þetta stuff núna. Það verður nú fínt.
jæja ætla bara að fara að klára þetta drasl og einbeita mér að því að halda skurðinum hreinum heheh.
Filed under: Uncategorized
Kjána flensa kemur alltaf á vitlausum tíma! ótrúlegt!!!! óþolandi urrg!! Er svona í e-u móki að reyna að klára leikskóla og skólalóða verkefni! Gengur ömurlega!!! uuurrggg Sumsé allt í kássu skólalega séð í augnablikinu
Þetta reddast, þetta reddast… reddast þetta ekki???
Filed under: Uncategorized
Já fór í vigtun í dag! Borgaði sig greinilega að sleppa páskaegginu í ár. 1 kg niður
þannig að 12,8kg í heildina
Er samt e-ð lasin núna. Held ég sé svei mér þá með hita og með eyrnaverki og stíflað nef og allt tilheyrandi í svona kvefpestum. Samt í fyrsta skiptið á þessu ári sem ég verð e-ð svona slöpp. Áður mátti stundum ekki anda á mig og ég var komin með kvef hehehe.Fjúff átti samt að vera í skoðunarferð með skólanum mínum núna :S Ákvað að liggja bara heima og reyna að láta mér e-ð batna. Svekk fyrir því samt
En já 12,8… bara 2,2 í 15kg. Þá verður maður nú að verðlauna sig e-ð er þaggi? Samt svo fyndið… alltaf ákveðinn metnaður hjá mér að fá límmiða í bókina hahaha eins og litlu krakkarnir!!! Jæja… ætla að fá mér e-ð að borða og sjá svo til hvort ég dröslist niðrí bæ að hitta bekkinn minn!!
Filed under: Uncategorized
fjúff letin er allsráðandi hér á mínu heimili þessa dagana. Ætti að vera að læra alveg hellings en ég bara dónt meik itt!! Þetta kemur
Ooooh svo ákvað ískápurinn minn að gefa upp öndina í gær. Hann hefur ekki alveg meikað skrúbbið!!! undarlegt! búin að prófa allt hann bara vill ekki virkar
Þessi leti hefur líka orðið til þess að ég hef gleymt að klára mjólkina mína og ávexti…. skrambans…. þetta reddast…. virkar alltaf að vera jákvæður er þaggi? hehehe
Annars… bara partý í kvöld og áræðanlega smá bossadill sem fylgir því ![]()
Filed under: Uncategorized
Fór í vigtun í Garðabæ áðan. Ótrúlega margir sem mættu þangað í hádeginu. Enn og aftur kom vigtin mér á óvart. Var búin að borða of mikið brauð yfir vikuna og svona en samt fór ég niður um 800gr. Þannig að þá eru komin 11,8 kg í allt
Fjúff veit ekki hvaða tiltektaræði hefur heltekið mig enn á ný! Kom í bæinn í gær og keypti inn á leiðinni á Klappó. Þegar ég kom inn og ætlaði að fara að setja matinn inn í ískáp gat ég það bara ekki. Mér fannst ískápurinn svo ótrúlega skítugur. Þannig að ég tók allt út úr honum (sem var næstum því ekkert) slökkti á honum og byrjaði að skrúbba. Þetta er nú mjöööög undarleg hegðun hvað varðar hana Brittu Magdalenu. En… þetta er bara til hins betra
vonandi er þessi tiltektarþörf bara komin til að vera
Filed under: Uncategorized
Jáhh aftur helgi! Það er e-r púki í mér þessa dagana. Held það séu páskaeggin sem eru e-ð að trufla mig! Langar bara alveg ógeðslega mikið í súkkulaði og nammi núna!!! Fyrsta skiptið sem mig langar svona svakalega mikið í nammi! Held ég kaupi mér páskaegg og geymi það þangað til á afmælinu mínu sem er 18.júní. Ætla þá að leyfa mér smávegis
Ég verð bara að lifa á því yfir páskana. Vitið… mér finnst miklu auðveldara að sleppa bolludegi og jafnvel jólamatnum og öllu því… en páskaegg… það finnst mér erfitt! En… læt þetta ekki á mig fá! Held ótrauð áfram…….
Filed under: Uncategorized
jáhh… fór í vigtun í dag. Léttist um nákvæmlega kíló þessa vikuna
ég sem er á "þeim tíma mánaðarins" og ekki búin að vera alveg nógu dúleg… fékk mér meira að segja rúsínur hehehe. Hélt ég hefði nú alveg pott þétt þyngst… er e-ð svo útblásin og svona! en neinei bara stuð
þannig að ég er bara happí
Filed under: Uncategorized
hahah var að muna eftir yndislega skemmtilegu atviki með mömmu um daginn. Vorum e-ð að keyra og svo kom þarna e-ð bossa hrisstilag í útvarpinu. Mamma hlustaði í smá stund og svo heyrist í henni "segir hann shake that ass of meat?" fannst þetta yndilsegt… hann segir.. shake that as for me hehehhe núna þegar ég heyri þetta lag heyri ég bara "shake that ass of meat shake that ass of meat… common girl shake that ass of meat….." ahahahha