Tími til kominn


jææææææææææja
May 31, 2006, 6:09 pm
Filed under: Uncategorized

Halló halló! hef algjörlega ekki verið í blogstuði seinustu vikur! vonandi batnar það nú hahahah! En mataræðið hefur gengið upp og niður síðustu vikur. Í prófunum fór allt í rassgat! Fékk mér nammi og e-ð…. sem ég bara skil ekki afhverju ég gerði… En… það þýðir lítið að velta sér upp úr því núna. Verð að geta fyrirgefið sjálfri mér fyrir svona hliðarspor… er það ekki? Núna er ég bara að reyna að vinna mig upp úr þessari lægð… soldið basl… en þetta hefst á endanum :) Þyngdist um 400gr eftir prófavikurnar. Næstu viku á eftir léttist ég svo um nákvæmlega 1400gr þannig að ég náði því niður í einni lotu heheh. Í vigtuninni í dag losaði ég mig við 1,1 kg. Í heildina er ég þá búin að henda 16,6 kg af líkamanum mínum.

Þóra litla frænka mín eða bróður dóttir mín hahah.. hljómar svo fullorðið, er í heimsókn. Hún er að verða 6 ára í næsta mánuði ;) Svaka stuð hjá okkur. hehehe enda ekki annað hægt með svona sætri og góðri skvísu ;)

Á morgun byrja ég svo að vinna! þá kemst nú líka meiri regla á daginn hjá mér. Borða þá morgunmat áður en ég fer í vinnuna, hádegismat í hádeginu (held ég) og svo kvöldmat þegar ég kem heim… rosa gott! En já ég er að fara vinna sem stöðumælavörður í sumar hahahaha það verður nú e-ð fróðlegt! En… fæ þá allavega að vera úti í sumar og labba allan daginn!

Er að spá í að fara að lyfta soldið og bara fara í ræktina þegar ég er búin að losa mig við ca 20 kg. Svona svo að maður fái soldið góðar línur heheheh… kannski maður skelli sér í kraftlyftingar… hef nú genin í það hahahah!

En jæja… blogga nú bráðum aftur ;)


No Comments Yet so far
Leave a comment



Leave a comment
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>