Filed under: Uncategorized
Þetta er orðið svona viku blogg bara hjá mér hehe… En fór í vigtun áðan og losaði mig við 900gr!! þannig að í heildina er komið 14,5 kg á 15 vikum. Þannig að ég er svona næstum því á réttu róli.
Skólinn er bara búinn að vera brjálaður. Hellingur af lokaverkefna skilum í þessari viku og í næstu og svo fyrsta prófið á föstudaginn. Held að þessir blessuðu kennarar ættu nú aðeins að fara að rýna í skipulagið á náminu. Finnst alveg ótrúlegt hvað þessi önn hefur verið illa skipulögð og bara algjörlega engan veginn sæmandi. Og það kjánalega við þetta allt saman er að deildin heitir UmhverfisSKIPULAG. Urrg verð svo pirruð á svona hlutum þegar það þarf bara e-ð örlítið til að þetta gangi bara fínt upp. Langar helst að fá að skipuleggja þetta bara sjálf fyrir næstu önn svo að þessir kjánar klúðri þessu ekki aftur urrrg. Svo lofa þau líka öllu góðu og ekkert gerist. Náttúrulega engan veginn mannsæmandi og hlutur sem þarf að breyta hið snarasta. Held ég geti bara fátt gott sagt um skólann minn að svo stöddu. Illa skipulagður, fáum verkefni hér um bil aldrei til baka, kennararnir hálfgerðar rolur, raungreina kennararnir líta niður til okkar á umhverfisskipulaginu… en það fyndna er að sterkustu nemendurnir í þeirra greinum erum við, finnst ég hafa lært mjög lítið í umhverfisskipulaginu þessa önnina…. veit satt best að segja eiginlega ekki úr hverju þau ætla að prófa, fengum eitt hefti sem eru svona 30 bls og svo illa ljósritað saman safn af e-m greinum, that´s it… mjög undarlegt fyrirkomulag. Svo gerðum við þetta risa stóra verkefni í umskinu sem kom bara engan veginn nógu vel út. Við vissum ekki bofs hvað við vorum að gera og verkefnalýsingin var hræðileg. Fórum í skoðunarferð þegar hálfur mánuður var liðinn af þessum mánuði sem við fengum til að gera þetta verkefni. Hún átti að hjálpa okkur að fá hugmyndir… en þá er bara helmingurinn af tímanum farinn í súginn. Fengum engin öryggis við mið eða neitt þannig. Áttum að gera sneiðingu af svæðinu sem að allir gerðu eins og okkur var kennt. En kennaranum fannst hún engan veginn nógu góð…… hún hefði þá átt að kenna okkur þetta betur…… lesum ekki hugsanir. Held að þessir kennarar haldi að við lesum hugsanir…. það bara hlýtur að vera… þetta getur ekki átt að vera svona kjánalegt hjá þeim. Fjúffffff jæja… ætla að hætta að nöldra og fara að læra e-ð….. vona að ég misskilji það ekki út af lélegri verkefnalýsingu……. uuuurrrrggg….. shit hvað ég er pirruð hahahha…..
2 Comments so far
Leave a comment
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>
go, Britta go, þú ert duuuuuuugleg! lycka till med pluggandet!
mamma
Comment by mamma May 13, 2006 @ 5:56 pmHæ hæ….mig fannst ég ætti að kommenta hér víst þú veist að ég er að koma hingað inn
…..svaka flottur árangur….gaman að fylgjast með þér
Comment by Ragnheiður May 17, 2006 @ 11:07 am