Tími til kominn


Fínasta helgi
April 3, 2006, 4:29 pm
Filed under: Uncategorized

jáhh… ekki mikið blogað um helgina. Veit ekki hvað hefur komið yfir mig! Ég bara tek til eins og ég eigi lífið að leysa! Byrjaði með því að ég tók íbúðina mína á Klappó í gegn. Breytti meira að segja í svefnherberginu gaaaal ein haha. Það var svona soldið stór tveggjasæta sófi inni í svefnherberginu og skrifborð…. og mín mátti nú ekki vera að því að hringja út e-ð lið til að hjálpa sér. Neinei ég bara dröslaði sófanum ein niður í geymslu og skrifborðinu líka hahaha!!! Ég svona vippaði honum upp á tána fyrst og hoppaði soldið aftur á bak svo hélt ég smá á honum svo dró ég hann líka soldið… sá samt ekki á honum ;) Heheeh það hefur örugglega verið ansi skondið að horfa á mig þarna brasa þetta!! Svo ákvað ég að taka ryksuguna mína með mér hingað á Hvanneyri. Finnst bara ekki alveg nógu gott að rykmoppa alltaf. Þannig að ég fór tíma í morgun, dreif mig svo heim og tók til. Þurrkaði af öllu og skúraði meira að segja ;) Nú get ég boðið hverjum sem er í heimsókn hehe Endilega koma í heimsókn núna :D hehehe  aaaahh hreingerningar lykt ;)
Matarmálin ganga betur en í seinustu viku. Enda mamman komin heim ;) Fiskibollur og pastasósa klikka ekki ;) Gleymi reyndar stundum ennþá að klára mjólkur skammtinn! Verð bara að fara að þamba mjólk á morgnanna! Líka byrjuð að skrifa betur niður :) Þannig að þetta er allt að smella aftur.  


2 Comments so far
Leave a comment

….og fínasta stelpa :)

Comment by mamma

nohh netið komið í lag :)

Comment by britta




Leave a comment
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>