Filed under: Uncategorized
Jájá fór í vigtun í gær, losaði mig við 800gr þessa vikuna og er þá orðin heilum 13,6 kg léttari.
Er orðin miklu hressari og bara nokkuð góð! En e-m þarna uppi fannst það ekki alveg eiga við og klaufanum mér tókst að trampa á glerbrot í gær. Fékk sumsé stærðar glerbrot í hælinn og stærðarinnar skurð og allt út í blóði og veseni! urrg og arg… Fór til læknis áðan og hann sagði orðrétt "æjæj stelpulingur þú ert bara með stærðar skurð á fæti" hahahahahah og "við þurfum bara að setja svona alvöru plástur á þetta" hahahahah
Var búin að fá frest á því að skila verkefninu og fékk einn dag í viðbót. Er svona að klára þetta stuff núna. Það verður nú fínt.
jæja ætla bara að fara að klára þetta drasl og einbeita mér að því að halda skurðinum hreinum heheh.
Filed under: Uncategorized
Kjána flensa kemur alltaf á vitlausum tíma! ótrúlegt!!!! óþolandi urrg!! Er svona í e-u móki að reyna að klára leikskóla og skólalóða verkefni! Gengur ömurlega!!! uuurrggg Sumsé allt í kássu skólalega séð í augnablikinu
Þetta reddast, þetta reddast… reddast þetta ekki???
Filed under: Uncategorized
Já fór í vigtun í dag! Borgaði sig greinilega að sleppa páskaegginu í ár. 1 kg niður
þannig að 12,8kg í heildina
Er samt e-ð lasin núna. Held ég sé svei mér þá með hita og með eyrnaverki og stíflað nef og allt tilheyrandi í svona kvefpestum. Samt í fyrsta skiptið á þessu ári sem ég verð e-ð svona slöpp. Áður mátti stundum ekki anda á mig og ég var komin með kvef hehehe.Fjúff átti samt að vera í skoðunarferð með skólanum mínum núna :S Ákvað að liggja bara heima og reyna að láta mér e-ð batna. Svekk fyrir því samt
En já 12,8… bara 2,2 í 15kg. Þá verður maður nú að verðlauna sig e-ð er þaggi? Samt svo fyndið… alltaf ákveðinn metnaður hjá mér að fá límmiða í bókina hahaha eins og litlu krakkarnir!!! Jæja… ætla að fá mér e-ð að borða og sjá svo til hvort ég dröslist niðrí bæ að hitta bekkinn minn!!
Filed under: Uncategorized
fjúff letin er allsráðandi hér á mínu heimili þessa dagana. Ætti að vera að læra alveg hellings en ég bara dónt meik itt!! Þetta kemur
Ooooh svo ákvað ískápurinn minn að gefa upp öndina í gær. Hann hefur ekki alveg meikað skrúbbið!!! undarlegt! búin að prófa allt hann bara vill ekki virkar
Þessi leti hefur líka orðið til þess að ég hef gleymt að klára mjólkina mína og ávexti…. skrambans…. þetta reddast…. virkar alltaf að vera jákvæður er þaggi? hehehe
Annars… bara partý í kvöld og áræðanlega smá bossadill sem fylgir því ![]()
Filed under: Uncategorized
Fór í vigtun í Garðabæ áðan. Ótrúlega margir sem mættu þangað í hádeginu. Enn og aftur kom vigtin mér á óvart. Var búin að borða of mikið brauð yfir vikuna og svona en samt fór ég niður um 800gr. Þannig að þá eru komin 11,8 kg í allt
Fjúff veit ekki hvaða tiltektaræði hefur heltekið mig enn á ný! Kom í bæinn í gær og keypti inn á leiðinni á Klappó. Þegar ég kom inn og ætlaði að fara að setja matinn inn í ískáp gat ég það bara ekki. Mér fannst ískápurinn svo ótrúlega skítugur. Þannig að ég tók allt út úr honum (sem var næstum því ekkert) slökkti á honum og byrjaði að skrúbba. Þetta er nú mjöööög undarleg hegðun hvað varðar hana Brittu Magdalenu. En… þetta er bara til hins betra
vonandi er þessi tiltektarþörf bara komin til að vera
Filed under: Uncategorized
Jáhh aftur helgi! Það er e-r púki í mér þessa dagana. Held það séu páskaeggin sem eru e-ð að trufla mig! Langar bara alveg ógeðslega mikið í súkkulaði og nammi núna!!! Fyrsta skiptið sem mig langar svona svakalega mikið í nammi! Held ég kaupi mér páskaegg og geymi það þangað til á afmælinu mínu sem er 18.júní. Ætla þá að leyfa mér smávegis
Ég verð bara að lifa á því yfir páskana. Vitið… mér finnst miklu auðveldara að sleppa bolludegi og jafnvel jólamatnum og öllu því… en páskaegg… það finnst mér erfitt! En… læt þetta ekki á mig fá! Held ótrauð áfram…….
Filed under: Uncategorized
jáhh… fór í vigtun í dag. Léttist um nákvæmlega kíló þessa vikuna
ég sem er á "þeim tíma mánaðarins" og ekki búin að vera alveg nógu dúleg… fékk mér meira að segja rúsínur hehehe. Hélt ég hefði nú alveg pott þétt þyngst… er e-ð svo útblásin og svona! en neinei bara stuð
þannig að ég er bara happí
Filed under: Uncategorized
hahah var að muna eftir yndislega skemmtilegu atviki með mömmu um daginn. Vorum e-ð að keyra og svo kom þarna e-ð bossa hrisstilag í útvarpinu. Mamma hlustaði í smá stund og svo heyrist í henni "segir hann shake that ass of meat?" fannst þetta yndilsegt… hann segir.. shake that as for me hehehhe núna þegar ég heyri þetta lag heyri ég bara "shake that ass of meat shake that ass of meat… common girl shake that ass of meat….." ahahahha
Filed under: Uncategorized
jáhh… ekki mikið blogað um helgina. Veit ekki hvað hefur komið yfir mig! Ég bara tek til eins og ég eigi lífið að leysa! Byrjaði með því að ég tók íbúðina mína á Klappó í gegn. Breytti meira að segja í svefnherberginu gaaaal ein haha. Það var svona soldið stór tveggjasæta sófi inni í svefnherberginu og skrifborð…. og mín mátti nú ekki vera að því að hringja út e-ð lið til að hjálpa sér. Neinei ég bara dröslaði sófanum ein niður í geymslu og skrifborðinu líka hahaha!!! Ég svona vippaði honum upp á tána fyrst og hoppaði soldið aftur á bak svo hélt ég smá á honum svo dró ég hann líka soldið… sá samt ekki á honum
Heheeh það hefur örugglega verið ansi skondið að horfa á mig þarna brasa þetta!! Svo ákvað ég að taka ryksuguna mína með mér hingað á Hvanneyri. Finnst bara ekki alveg nógu gott að rykmoppa alltaf. Þannig að ég fór tíma í morgun, dreif mig svo heim og tók til. Þurrkaði af öllu og skúraði meira að segja
Nú get ég boðið hverjum sem er í heimsókn hehe Endilega koma í heimsókn núna
hehehe aaaahh hreingerningar lykt ![]()
Matarmálin ganga betur en í seinustu viku. Enda mamman komin heim
Fiskibollur og pastasósa klikka ekki
Gleymi reyndar stundum ennþá að klára mjólkur skammtinn! Verð bara að fara að þamba mjólk á morgnanna! Líka byrjuð að skrifa betur niður
Þannig að þetta er allt að smella aftur.